Sjálfstæðisfélagið Baldur Kópavogi

02. ágúst 2011

ÁSKORUN TIL FORSETA ÍSLANDS

Áskorun

Áskorun

Stjórn Sjálfstæðisfélagsins Baldurs í Kópavogi skorar á forseta Íslands að standa með hagsmunum þjóðar sinnar og undirrita ekki hin nýsamþykktu lög Alþingis sem almennt ganga undir nafninu „IceSave III“ og vísa þeim þar með til úrskurðar íslensku þjóðarinnar á nýjan leik.

 

Það hefur verið fullyrt að „IceSave III“ lögin séu hagstæðari en fyrri lög um sama efni. Á það skal bent að höfuðstóll kröfunnar mun enn vera sá sami og fyrr en vextirnir örlítið hagstæðari. Því felst enn geysileg fjárhagsleg áhætta í samningnum fyrir skattgreiðendur, enda er ekki á vísan að róa með söluvirði eigna þrotabús Landsbankans né heldur gengisþróun gjaldmiðils okkar ekki hvað síst.

 

03. febrúar 2011

ÁLYKTUN = KRAFA UM ÞJÓÐARATKVÆÐI ICESAVE III

Stjórn Baldurs hefur verulega þungar áhyggjur af ákvörðun þorra þingmanna Sjálfstæðisflokksins um afstöðu þeirra til Icesave III frumvarpsins sem nú er að fæðast úr höfði fjárlaganefndar.

Þarna ganga kjörnir þingmenn gersamlega á svig við mjög afdráttarlausa ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins 2010 um þetta málefni þar sem samþykkt var með nánast öllum greiddum atkvæðum á 1.900 manna landsfundinum að hafna bæri löglausum kröfum Breta og Hollendinga í þessu efni.

Því er fullkomlega ljóst hver afstaða Sjálfstæðisflokksins er til þessarar ósvífnu innheimtukröfu Breta og Hollendinga, en hún er að hafna beri að greiða hana.

Því er nú með öllu óskiljanlegt hvað rekur þetta stóran hóp þingmanna, sem kenna sig við Sjálfstæðisflokkinn  og buðu krafta sína fram við síðustu Alþingiskosningar í nafni hans, til að ganga svo gersamlega á svig við afdráttarlausa afstöðu landsfundar Sjálfstæðisflokksins til nákvæmlega þessa máls.

23. júní 2010

ÁLYKTUN UM EVRÓPUSAMBANDSUMSÓKN

„Í ljósi þess að forsætisráðherra Bretlands hefur lýst því yfir að ESB verði beitt gegn Íslandi í IceSave deilunni og þar sem að lágmarki 58% þjóðarinnar eru andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið skorar stjórn Sjálfstæðisfélagsins Baldurs í Kópavogi á Alþingi að draga aðildarumsókn Íslands að sambandinu tafarlaust til baka.”

16. nóvember 2009

ÁHYGGJUR STJÓRNARINNAR Á EFNAHAGSÁSTANDINU OG AÐGERÐARLEYSI RÁÐVILLTRAR RÍKISSTJÓRNARINNAR

Stjórn Sjálfstæðisfélagsins Baldurs í Kópavogi hefur gífurlegar áhyggjur af efnahagsástandi þjóðarinnar og samþykkti á stjórnarfundi sínum þann 12. nóvember
2009 eftirfarandi ályktun :

 

 

23. janúar 2009

Voveifleg tíðindi á vályndum tímum

Voveifleg tíðindi bárust eftir fund miðstjórnar og þingflokks í dag.

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Herra Geir Hilmar Haarde, flutti þjóðinni hin voveiflegu tíðindi að greinst hefði í vélinda hans illkynja æxli. Forsætisráðherrann hefur tekið þá þungbæru ákvörðun um það að sækjast ekki eftir endurkjöri í formannsstól á næsta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Sú ákvörðun er mikil blóðtaka fyrir Sjálfstæðisflokkinn, enda enginn venjulegur maður sem þarna hverfur brátt úr formannsstóli.

Það er víst þarflaust að segja að menn setur hljóða við þessi alvarlegu tíðindi, þrátt fyrir að læknavísindum hafi fleygt mikið fram undanfarin ár. Vissulega eiga menn góða von um bata en
krabbamein er víðsjárverður vágestur sem taka ber alvarlega og af engri léttúð.

Mikið hefur mætt á forsætisráðherranum frá því að bankahrunið reið yfir þessa þjóð með öllu því afli sem ekki er enn séð fyrir endann á. Má með nokkrum sanni segja að menn hafi persónugert þessar ófarir upp á Herra Geir Hilmar Haarde þar sem hann stýrir þjóðinni í gegn um þennan ógnvænlega brimskafl sem þetta hrun hefur leitt yfir þjóðina, eins og hann beri einn á þessu alla ábyrgð.


Sjálfstæðisfélagið Baldur
Hlíðasmári 19
200 Kópavogur
Tölvupóstur
Ganga í flokkinn
Styrkja flokkinn
www.xd.is